Boð og bönn.

smoking-cigarette-and-beer-in-pint-glass-AJHD

Nú eru þessir vinir ekki lengur saman á börum.

Jæja þá er búið að loka á reykingarfólk á veitingarhúsum landsins. nú geta þeir reyklausu tekið gleði sína því þeim líkaði ekki reykurinn. Er ekki hægt að banna drykkju á börunum því ölvað fólk er leiðinlegt og getur verið hættulegt til dæmis þegar það sest undir stýri og margt annað sem gert er í ölæði. Á ekki líka að banna feitt kjöt á veitingarstöðum það er jú óhollt segja margir. Svona má lengi telja. Á endanum verða veitingarhús og barir bannaðir því þar kemur fólk saman og það getur verið hættulegt.

 


mbl.is Hvað mega veitingamenn gera fyrir reykingamenn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta er nú bara eins og að lesa sögu eftir Kafka.

Svava frá Strandbergi , 2.6.2007 kl. 14:33

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Það er rétt hjá þér

Jens Sigurjónsson, 2.6.2007 kl. 15:40

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Reykingar drepa hægt..drukkið fólk getur gefið manni einn á kjammann og maður er dauður. Virkilega er það satt hjá þér...drukkið fólk er með afbrigðum leiðinlegt þeim sem edrú eru og í mörgum tilfellum hættulegt. Góður pistill og orð í tíma töluð

PS:  Ég er ekki reykingamannekja

Rúna Guðfinnsdóttir, 2.6.2007 kl. 16:34

4 Smámynd: Svartinaggur

Mér finnst nú þessi pistill vera bara dæmi um hundalógík.

Svartinaggur, 3.6.2007 kl. 22:21

5 identicon

Drykkja ein og sér drepur ekki þá sem EKKI drekka og sama á við um feitt kjöt. Reykingar drepa líka þá sem velja að reykja ekki! Þar liggur munurinn. Sama ástæða og önnur eiturefni eru bönnuð á vinnustöðum!

 Fólk sem lemur aðra undir áhrifum er ofbeldishneigt fólk - margir eru það án þess að drekka

... (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband