1.5.2010 | 16:49
Ótrúlegir fávitar.
Á aðalfundi Frjálshyggjufélagsins var ný stjórn félagsins kjörin. Björn Jón Bragason sagnfræðingur og laganemi var endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórninni eru:
Geir Ágústsson verkfræðingur
Gísli Jón Hjartarson útgerðastjóri
Gísli Freyr Valdórsson blaðamaður
Gunnar Dofri Ólafsson laganemi
Haraldur Pálsson hagfræðinemi
Hjalti Sigurðarson hagfræðingur
Hlynur Jónsson laganemi
Ingimar Tómas Ragnarsson menntaskólanemi
Leifur Þorbergsson hagfræðinemi
Máni Atlason laganemi
Páll Aðalsteinsson, nemi í rekstrarverkfræði
Páll Arnar Guðmundsson laganemi
Skúli Hansen laganemi
Sigurður Þór Gunnlaugsson vínfræðingur
Sævar Guðmundsson laganemi
Valþór Druzin Halldórsson forritari
Vignir Már Lýðsson hagfræðinemi
Vilhjálmur Andri Kjartansson laganemi.
Eftir að hafa lesið þennan lista yfir, finnst mér að það þurfi að stór efla kennslu í siðfræði við laga og hagfræðideildir háskólanna.
Rökþrot eða vanþroski ?
Litlu vitringarnir í Frjálshyggjufélaginu bera hag hinna ríku mjög fyrir brjósti og í samþykkt aðalfundarins segir að orðið auðmaður sé komið á stall og orðið gyðingur "í munni áróðursmeistara þýska nasistaflokksins". Vonandi er hægt að skrifa jafn ósmekklega samlíkingu á vanþroska strákanna í frjálshyggjufélaginu. Það hefur löngum verið mælikvarði á rökþrot að seilast í líkindum til Þýskalands Hitlers.
En þessir vitringar hljóta að vita að auðmenn Íslands sem settu landið sitt í þrot lifa góðu lífi já og betra lífi en Þorri Íslendinga.
En Gyðingarnir voru niðurlægðir pyntaðir og sendir í útrýmingarbúðir og drepnir þar.
Athugasemdir
laganemi, hagfræðinemi, laganemi, hagfræðinemi. Framtíðin er björt með þessa máttarstólpa
Finnur Bárðarson, 1.5.2010 kl. 17:29
Finnur já það er bjart framundan
Jens Sigurjónsson, 1.5.2010 kl. 17:37
Það vantar ekki flotta titla hjá þessum körlum.
Gaman að sjá til þín hér á blogginu.
Guð veri með þér og þínum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.5.2010 kl. 18:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.