Færsluflokkur: Bloggar
13.12.2007 | 15:42
Veðurteftur í Halifax.
Halifax.
Jæja ég er búinn að vera hérna á flugvellinum í Halifax veðurteftur í 8 tíma en við komumst á
stað eftir 5 tíma.
Þetta er búið að vera meira ferðarlagið hjá mér.
Lagði af stað frá Keflavík í gærmorgun, fór þá til London eftir 3 tíma stopp var flogið til Ottawa
þar var stoppað í 3 tíma og þá var lagt í hann til Toronto þar var stoppað í 2 tíma og ferðinni
heitið til st.Johns en þar var ekki hægt að lenda svo okkur var snúið til Halifax.
Það snjóar hressilega í st. Johns núna en er að byrja að stytta aðeins upp. Svo við förum eftir
5 tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.12.2007 | 10:55
öryggisráð........
Er fólk alveg að missa sig í ruglinu ?
Öryggisráð Femínistafélags Íslands, Það er ekkert annað.
Ég verð að segja það að ég trompaðist úr hlátri þegar ég las þetta.
Þetta blessaða félag er orðið einn stór brandari.
Sjá þessar stelpur sem komu í silfur Egils, þvílíkt rugl.
Þetta eru orðnar svo miklar öfgar og vitleysa að það tekur engin mark
því sem kemur frá þessu félagi lengur.
Öryggisráð hahahahaha hvað verður næst hjá þeim ?
![]() |
Femínistafélagið kærir Vísa-klám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.12.2007 | 00:47
Bullið í siðmennt.
Nú er orðið varasamt að ungt fólk í dag þekki söguna um Jesú Krist.
Hope Knutsson formaður siðmenntar, sem er félag siðrænna húmanista á íslandi.
Segir að trúarlegi þátturinn eigi ekki að vera hluti af skólastarfinu.
Og að trúarlegt uppeldi barna sé á ábyrgð foreldra.
Erum við ekki kristinn þjóð ?
Eru ekki flest allir foreldrar í þessu landi sem vilja að börnin sín fái kristilegt uppeldi ?
Og eru skólarnir ekki partur af uppeldi barnanna ?
Það á ekki að hlusta á þetta rugl í siðmennt.
Ég held að engu barni hafi orðið meint af því að heyra sögurnar og boðskapinn sem Jesú
færði okkur.
Ef eitthvað ætti að gera, þá ætti að efla kristinfræðina í skólunum.
Er ekki möguleiki að siðmennt hefði sín börn í sérskólum þar sem ekki væri minnst á Jesú ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
10.12.2007 | 23:44
Tíska nýfæddra barna.
Hafa þingmenn ekkert orðið að gera eða hvað ?
Kolbrún.
Ég er ekki búinn að vera á landinu í nokkuð langan tíma eða í rúma 5 mánuði.
Þannig að ég hef verið að forvitnast um hvað hafi verið að gerast í þjóðfélaginu
síðustu misserin.
Allir eru að segja mér frá ansi spaugilegu máli sem kom upp í þinginu fyrir nokkru.
Fyrst hélt ég að fólk væri að skrökva upp á þingmann sem kom með fyrirspurn um
klæðnað nýfæddra barna.
Er ekki í lagi með hana Kolbrúnu Halldórs eða hvað ?
Að standa upp í Þinginu og spyrja ráðherra hvort hann muni beita sér í því að
nýfædd börn verði ekki klædd í bleikt eða blátt , er alveg ótrúlegur gjörningur.
Hún vill breyta til og klæða þau í hlutlausa liti.
Skiptir einhverju máli hvaða litur er á fatnaði ungbarna ? Hvað er að fólki ?
Kolbrún vill kannski hafa áhrif á tískuna strax í upphafi ?
Hugsa sér vitleysuna, að blanda pólitík í klæðaburð hvítvoðunga.
Ég þakka bara fyrir að Kolbrún komist ekki til meiri valda en að vera óbreittur þingmaður.
Hugsa sér ef hún væri ráðherra.
Þetta er eitthvað það heimskulegasta sem ég hef heyrt koma úr þingheimi, og kemur nú
margt spaugilegt þaðan.
Hvað verður næst ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2007 | 00:13
Kvedja fra Canada.
St.Johns
Nu styttist i ad madur fari ad koma ser heim aftur, èg er buinn ad vera sjonum sidan i Juli.
En èg kem heim i byrjun desember.
Nuna er èg vid bryggju i Harbor Grace i Newfoundland.
Eg er skipstjori og eini Islendingurinn um bord i tessu skipi, en adrir ur ahofninni eru fra
austur evropu og tala litla sem enga ensku, tannig ad madur er nu ekki ad kjafta sig i kaf
tessa dagana.
Bestu kvedjur til ykkar allra.
Jenni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.7.2007 | 14:14
Ráðherravalið.
Þetta er eflaust hin ágætasta ríkisstjórn, en ég hefði viljað sjá hana aðeins öðruvísi.
Björn Bjarnason hefði ég ekki viljað sjá þarna inni, enda strikaði stór hluti kjósenda sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður hann út. Eins finnst mér Árni Matt ekki eiga að vera ráðherra hann er svo leiðinlegur og hrokafullur maður, en hann á auðvitað rétt á ráðherrasæti efstur á suðurlandi. Og Einar K. Guðfinns á bara ekki heima þarna SKANDALL. Jæja hjá Samfylkingunni Finnst mér furðuleg ákvörðun að gera Þórunni að ráðherra, maður spyr sig hvað er í gangi þegar hæfara fólk er fyrir ofan hana á lista. Spurning með Björgvin, hann inni en ekki Ágúst. hvað er að ?
Ég hefði viljað sjá þetta svona miðað við að skipting ráðuneyta er sú sama.
Geir H. Haarde......................................Forsætisráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir............Dómsmálaráðherra
Kristján Þór Júlíusson..........................Sjávarútvegs & Landbúnaðaráðherra
Illugi Gunnarsson...............................Fjármálaráðherra
Guðfinna S. Bjarnadóttir......................Menntamálaráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson..................Heilbrigðisráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir................Utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson.......................Iðnaðarráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir.......................Félagsmálaráðherra
Ágúst Ólafur Ágústsson.....................Viðskiptaráðherra
Katrín Júlíusdóttir...............................Umhverfisráðherra
Kristján L. Möller...............................Samgönguráðherra
![]() |
Innan við helmingur landsmanna sáttur við ráðherraval |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.6.2007 | 18:14
Búkolla veldur usla.
Nú er orðin áhætta fyrir bændur að taka börn í sveitina til sumardvalar. Dómstólar landsins hefðu nú lítið haft annnað að gera hér á árum áður ef öll börn hefðu kært bændur landsins fyrir skrámurnar sem þau fengu á líkama sýna eftir smá pústra við húsdýrin. Mér finnst þetta mál með ólíkindum vitlaust.
Þetta er hin eina sanna heilaga kýr. (Holy Cow)
Hún stangar ekki börn.
![]() |
Slasaðist í viðskiptum við kú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.6.2007 | 08:49
Fuglalíf í Hornbjargi er að fjara út.
Hornbjarg.
Í Bændablaðinu sá ég grein um að fuglalíf í Hornbjargi væri á hröðu undanhaldi vegna ágangs refs. Sagt er að um eitt hundrað þúsund fuglar hafi misst varpsvæði sín vegna þessa. Og að á tilteknum svæðum sé lundinn alveg horfinn, sömuleiðis hvítmáfurinn og fýlar séu bara á stangli. Í greininni er sagt frá eggjatöku í ferð á tiltekinn stað í bjarginu fyrir 30 árum síðan og fengust þá þúsund svartfuglsegg en á sama stað í vor aðeins 13 egg.
Þetta er gott dæmi þegar friða á algerlega eina tegund dýra, þá raskast lífríkið stórlega eins og er að gerast við Hornbjarg. Það er ekki nokkur spurning að afnema þessa friðun refsins og fækka honum allverulega strax svo ekki fjari út allt fuglalíf í Hornbjargi. Eins á að leggja mikla áherslu á að fækka minknum sem veður orðið um allt með miklu raski á lífríkið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.6.2007 | 01:19
Líkflutningar.
Ég skil ekki þennan æsi fréttaflutning stöðvar 2 um að lík séu send með flutningabílum milli landshluta. Hefur þetta ekki verið svona í mörg mörg ár ? Hvað er að því þó kista sé sett inn í kæli ? Hvað er málið ? Kannski mætti hafa sér hólf í þessum kæligeymslum undir kisturnar. En að heilbrigðiseftirlitið sé kallað til er fyndið, ætli hinir látnu mengi svo mikið matvælin að hætta stafi að ? Nei ég held ekki. Landflutningar - Samskip eru að sinna góðu verki að koma hinum látnu til átthaga sinna þar sem þeir ætla að leggjast til hinnar hinstu hvílu. Og sinnir flutningafyrirtækið því verki örugglega af mikilli virðingu við farþegana.
![]() |
Samskip segjast fylgja nákvæmlega reglum um líkflutninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.6.2007 | 22:42
Þrælahald.
Er ekki kominn tími til að banna þrælahald á Íslandi, Það er jú árið 2007 og er ekki verið að banna allt hvort sem er ? Það er verið að tala um að stúlkur sem stundi svokallaðan listdans á þessum umtöluðu súlustöðum komi frá fyrrum austantjaldslöndum og séu hér sem þrælar, í það minnsta eru þær ekki frjálsar ferða sinna. Nú svo eru piltar frá sömu löndum fluttir hingað í verkamannavinnu, og er lítið sem ekkert borgað fyrir þá vinnu. Hafa verkamennirnir verið látnir sofa og hvílast í iðnaðarhúsum sem eru ekki mönnum bjóðandi sem vistarverur.
Hvað er eiginlega í gangi ? Ég bara spyr.
![]() |
Rafiðnaðarsambandið vill láta rífa verk pólskra starfsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)