Þrælahald.

slavery

Er ekki kominn tími til að banna þrælahald á Íslandi, Það er jú árið 2007 og er ekki verið að banna allt hvort sem er ? Það er verið að tala um að stúlkur sem stundi svokallaðan listdans á þessum umtöluðu súlustöðum komi frá fyrrum austantjaldslöndum og séu hér sem þrælar, í það minnsta eru þær ekki frjálsar ferða sinna. Nú svo eru piltar frá sömu löndum fluttir hingað í verkamannavinnu, og er lítið sem ekkert borgað fyrir þá vinnu. Hafa verkamennirnir verið látnir sofa og hvílast í iðnaðarhúsum sem eru ekki mönnum bjóðandi sem vistarverur.

Hvað er eiginlega í gangi ? Ég bara spyr.


mbl.is Rafiðnaðarsambandið vill láta rífa verk pólskra starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Já þetta er skrítin þróun.  Ekki nema von þú spyrjir. Vonandi fer að komast einhver almennilegur flötur á málefni erlends vinnuafls. Þetta er jú fólk allt saman.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 25.6.2007 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband