9.3.2008 | 14:34
Þarf enginn að taka ábyrgð ?
Ég er búinn að vera að spá í það undanfarið, er fólk sem vinnur hjá því opinbera algerlega
ábyrgðarlaust gagnvart öllu sem það kann að gera þar ?
Hvernig stendur á því að enginn virðist vera ábyrgur fyrir því peninga sukki sem átti sér stað
við byggingu nýrrar stúku og skrifstofubyggingar knattspyrnusambandsins á Laugardalsvelli ?
Kjörnir borgarfulltrúar benda á hvorn annan og neita ábyrgð.
Það er verið að tala um heilar 600 miljónir fram úr áætlun og enginn ber ábyrgð.
Er hægt að treysta þessum kjörnu borgarfulltrúum sem haga sér svona ? Mitt svar er nei ?
Eins er þetta mál með Grímseyjarferjuna, verður enginn dreginn til ábyrgðar þar ?
Þetta er alveg stórkostlegt að menn geti farið svo óvarlega með skattpeninga þessa lands,
án þess að bera nokkra ábyrgð.
Það hlýtur að vera krafa þegna þessa lands að sannleikurinn komi í ljós og menn beri ábyrgð
á gjörðum sínum. Þetta eru engir smá peningar sem er verið að tala um.
Bara í þessum tveimur dæmum erum við að tala um að 1 miljarð sem hefur flogið út um gluggann.
Og mönnum sem eiga að gæta skattpeningana okkar virðist vera nokkuð sama.
En þá kemur spurningin hver passar skattpeningana okkar ? það virðist engin gera það.
Það hefði verið hægt að gera mikið fyrir 1 miljarð það er ekki spurning.
Svo segja þessir aðilar alltaf " við verðum bara að læra af mistökunum." Það er gott að læra
en menn verða líka að taka ábyrgð á gjörðum sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.3.2008 | 13:27
Er hvalkjötið umhverfisvænt ?
Jæja nú segir í skýrslu Norðurheimskautssamtakanna að neysla hvalkjöts valdi minni
losun gróðurhúsalofttegunda en neysla annars kjöts.
Það er til dæmis sagt í skýrslunni, "Það magn gróðurhúsalofttegunda sem ein nautakjöts-
máltíð losar jafnast á við átta hvalkjötsmáltíðir."
Ef þetta er staðreynd, er þá nokkuð annað fyrir fólk að ýta kjúklingakjöti, svínakjöti og svo
nautakjötinu til hliðar og borða hvalinn ef okkur er annt um plánetuna okkar ?
Jæja er þá ekki bara að riðhreinsa gömlu hvalskutlana og fara að veiða hval ?
Ekki verða svokallaðir náttúruverndarsinnar á móti því. Jú vilja ekki allir bjarga heiminum ?
En sennilega verða bændur ekki ánægðir ef allir verða farnir að elda hvalkjöt í stórum stíl.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.3.2008 | 23:05
Er ekki í lagi.
Margir verða ruglaðir með víni.
Þó svo maður hafi nú oft verið uppátektarsamur hér áður fyrr þegar maður fékk sér í glas,
þá datt manni nú aldrei í hug að taka vínið í nefið.
Ég held nú að aumingja stúlkan hafi bara verið búinn að fá sér fullmikið í tánna þetta kvöld.
Þannig að hún hafi bara ekki haft stjórn á því hvar sopinn lenti í grímunni hennar.
En allavega held ég að það hljóti að vera skemmtilegra að koma sopanum rétta leið.
Skál.
![]() |
Winehouse tekur vodka í nefið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.3.2008 | 01:26
Bandarískir karlmenn farnir að taka til heima hjá sér.
Það eru góðar fréttir að karlarnir í henni Ameríku sé loksins farnir að taka til heima hjá
sér, og farnir að minnka þessa karlrembu.
Og ekki er nú fréttin verri af sálfræðingnum Joshua Coleman sem taldi sig gera mikla uppgötun.
En hann er búinn að sjá það að ef hjón vinna saman á heimilinu og að ef karlinn er góður við
konuna sína og dekrar svolítið við hana, að þá líður henni vel og hamingjan verður meiri á heimilinu.
Já þeir eru ekki vitlausir sálfræðingarnir í henni Ameríku að fatta þetta.
![]() |
Fleiri húsverk - meira kynlíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2008 | 00:24
Hamingjan orðin arfgeng.
Jæja nú á hamingjan víst að erfast, ja hérna ekki er öll vitleysan eins í þessari veröld.
Ég held nú að hamingjan sé eitthvað sem maður ávinnur sér en er ekki meðfætt.
Hamingja er lífsviðhorf, að vera sáttur við sitt líf er hamingja.
En hamingjuna verður maður að finna innra með sér, hún finnst ekki í hlutum eða gjöfum.
Hamingjan sést ekki á eigum eða stöðu, nei aðeins maður sjálfur veit að maður er hamingjusamur.
Hamingjan sem slík erfist ekki það held ég að sé nokkuð öruggt.
Hamingja er ekki að fá það sem maður vill, heldur vilja það sem þú færð.
![]() |
Hamingjan er arfgeng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2008 | 22:39
Upptyppingar.
Upptyppingar og Herðubreið í baksýn.
Já núna skelfur jörðin við Upptyppinga, en sem betur fer er ekki talin hætta á ferðum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
En það væri gaman að vita hver hugmyndin á bakvið nafnið er, bara svona til gamans, þá er ég aðallega að spá í orðið typpingur.
En landslagið við Upptyppinga er mjög fallegt.
Ég held að orðið typplingur merki toppur
En ég veit að typpi með ypsiloni merkir húnn á siglutré, sem sagt toppurinn á trénu.
Ef landslagið væri svona gæti ég skilið nafngiftina.
![]() |
320 smáskjálftar við Upptyppinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.3.2008 | 15:03
Latur að blogga.
Vopnafjörður.
Jæja það verður nú að segjast að maður er búinn að vera ansi latur við að blogga undanfarið.
En ég er búinn að njóta þess að vera í fríi undanfarna daga og tekið lífinu með ró.
Ég og Beverley fórum í stutta heimsókn til foreldra minna austur á Vopnafjörð, og alltaf er jafn
gaman að koma á sínar gömlu æskuslóðir og hitta ættingja og gamla vini.
Akureyri.
Einnig stoppuðum við í nokkra daga á Akureyri, þar býr sonur minn, og áttum við mjög góðan
tíma saman eins og alltaf þegar við hittumst.
Á Akureyri búa líka tvær af systrum mínum, mjög gaman var að hitta þær og fjölskyldur þeirra.
Nú svo var stefnan sett á heimsborgina London, og myndirnar hér fyrir ofan tók ég í þeirri ferð.
Í London vorum við í nokkra daga, og vorum bara að njóta lífsins og slappa vel af.
En núna er fríið að verða búið í bili, en ég sigli frá Reykjavík fljótlega og er stefnan sett á
Newfoundland.
Ég Ég og Bev Beverley
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.1.2008 | 23:59
À leidinni heim i torramatinn.
St.Johns
Nuna er èg i St.Johns og tar er ansi kalt nuna og svo snjoar i augnablikinu en tad
er ekki mikid. À sunnudaginn fer èg til Halifax og svo er stefnan sett heim. Ad visu
fer èg til London fyrst en tad verdur bara smà stopp tar nuna.
Tad verdur gott ad koma heim i torramatinn, hàkarl, surmatur og hangikjot ekki slaemt.
Jaeja bid ad heilsa i bili.
Halifax
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2008 | 13:22
Kemur ekki a ovart.
Bjorn Ingi Hrafnsson hefur yfirgefid politikina i Reykjavik.
Tad var rett hja honum ad fara, og hinir borgarfulltruarnir og ta a èg vid alla hina
eiga ad taka hann til fyrirmyndar og yfirgefa radhusid og boda til kosninga.
Èg treysti engum hvorki i meiri eda minni hlutanum til ad stjorna borginni.
En Bjorn Ingi kann ad takka fyrir sig enda kurteis madur, hann segir a bloggsidu
sinni ordrett.
"Framsoknarflokkurinn hefur gefid mèr miklu meira en èg honum."
Sennilega er Bjorn Ingi ad takka fyrir fatnadinn sem flokkurinn hefur gefid honum.
![]() |
Björn Ingi hættir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.1.2008 | 03:28
Godar frèttir hja HB Granda.
Èg sa frètt a teim goda vef vopnafjordur.is ad HB Grandi var ad kynna nyjar hugmyndir.
HB Grandi var ad kynna hugmyndir um ad staekka fiskimjolverksmidjuna a stadnum.
Verksmidjan sem er nuna afkastar 600 tonnum a solahring en hugmyndin er ad fara upp
i 1000 tonn a solahring.
Tetta verda miklar framvaemdir ef farid verdur ut i tetta.
Stefnan er su ad byrja a verkinu i vor og nyja verksmidjan verdi tilbuinn vorid 2009.
HB Grandi hefur verid i mikilli uppbggingu a Vopnafirdi og verdur tad vonandi afram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)