22.3.2009 | 17:15
Hér mátti litlu muna.
27. febrúar árið 2003 kom Andvari til hafnar í Harbour Grace á Newfoundland eftir veiðiferð á Flæmska hattinum, báturinn lenti í mikilli ísingu á landleiðinni eins og sést vel á þessum myndum.
Við aðstæður sem þessar er mikill hætta á ferðinni.
Ég setti inn fleiri myndir af þessu inn í albúmið merkt MIKIL ÍSING.
Athugasemdir
Sæll Jens.
Þetta eru magnaðar myndir,og maður segir nú bara.
Hvar er þyngdarpunkturinn ?
,hinn almenni landkrabbi veit ekkert um hvað þetta snýst
hvað stutt er á milli lífs og dauða á höfunum í norðri !.
Takk fyrir myndbirtinguna og frásögnina
Kærleikskveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 18:15
Sæll Þórarinn.
Ég hef grun um að þyngdapunturinn GMT sé kominn talsvert upp yfir Andvara þarna, en það getur skeð að GMT sé ekki inn í skipinu og þá sérstaklega við aðstæður sem þessar, Skipin fluttu síldartunnurnar til okkar voru gott dæmi um að GMT fór langt upp úr skipunum.
Kveðja / Jenni.
Jens Sigurjónsson, 22.3.2009 kl. 18:33
Sæll og blessaður
Við vitum að hásetarnir hafa þurft að höggva og höggva ís þegar skip hafa lent í svona mikilli ísingu svo að þau haldi áfram að fljóta. Þetta er hrikalega flottar myndir, segir allt sem segja þarf.
Sniðugt að sjá brúnna. Skipstjórinn hefur átt í erfiðleikum með að sjá út. Hásetarnir hafa þurft að fara út að höggva ís frá gluggunum í brúnni. Svo er ein myndin þarna eins og úr íshelli. Var komin í huganum uppá hálendi Íslands í návist við jöklana.
Hef séð þætti í sjónvarpi þar sem var verið að sýna frá skipum sem lentu í mikilli ísingu og voru þessi skip að sigla í Norður-Íshafi um miðja síðustu öld. Skipsverjar voru í mikilli lífshættu en dugnaðurinn og áræðni urðu til þess að skipsverjar komust allir heilir heim.
Vertu Guði falinn
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.3.2009 kl. 18:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.