28.2.2009 | 00:16
Óli og Bush á sama plani.
-
- Aðeins 31% landsmanna eru ánægð með störf Forseta Íslands og heil 46% eru óánægð með störf hans samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups.
- Þjóðin er greinilega búin að sjá í gegnum sýndarmennskuna og froðusnakkið sem hefur einkennt þetta embætti nú um nokkur ár.
- Forsetinn hefur verið einskonar verndari Útrásarvíkinganna, Hann hefur verið ötull talsmaður víkinganna á alþjóðarvettfangi og talað máli þeirra og mært þá vel og þannig oft á tíðum rutt braut þeirra vel.
- Forsetinn í vinnunni fyrir Mammon.
-
- Ólafur Ragnar Grímsson er við það að toppa George W. Bush Forseta Bandaríkjanna í vinsældum en samkvæmt skoðanakönnun sem var framkvæmd í Bandaríkjunum rétt áður en Forsetinn fór úr Hvíta Húsinu, voru aðeins 28% Bandaríkjamanna ánægð með störf Georgs W. Bush.
- En núna er Jóhanna búinn að henda Davíð út á gaddinn, og breytti hún lögum um seðlabankann til að svo mætti verða.
- Er þá ekki bara komin tími til að gera smá breytingar á stjórnarskránni og gera embætti
- Forseta Íslands óþarft, og henda þar með Ólafi út á gaddinn ?
- Allavega vill þjóðin ekki sjá hann lengur.
Tæpur þriðjungur ánægður með forsetann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvar eru nú raddir fólksinns, ef þær láta ekki til sín taka á Bessastöðum er þetta orðin marklaus barátta. Ólafur Ragnar ber höfuð ábyrgð á bankahruninu, hann var í þotuliðinu mærði það um allar jarðir, og kom í veg fyrir að fjölmiðlarnir fylgdust með því hvað þetta lið athafðist, og á að segja af sér strax. Sennilega er Hitler eini þjóðhöfðinginn í Evrópu eftir stríð sem hefur verið lélegri. Skammarleg frammistaða, forsetanum og þjóðinni til ævarandi skammar.
Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 02:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.