Michael Moore

michael-moore Heimildarmynd.
 
Ég vil endilega að reynt verði að fá Michael Moore til að gera heimildarmynd um hrun Íslenska hagkerfisins.
 
Og í myndinni yrði farið vel ofan í saumana á þeirri spillingu sem varð þess valdandi að Ísland varð gjaldþrota þjóð.  Já það væri gaman að fólk um allan heim fengi að sjá hvernig nokkrir forhertir glæpamenn gengu um og stálu bönkum landsins og öllum vogunarsjóðum með góðri hjálp stjórnmálamanna.Og hvernig einn ráðherrann þáði 1000 miljónir að gjöf frá þessum krimmum en þessi gjöf var nefnd Kúlulán.
 
Og gaman væri að upplýsa fólk um hvers vegna má ekki ganga á persónulegar eigur þessara fjárglæframanna ? Þegar hinum heiðarlegu almennum skattborgurum er á sama tíma keyrt hver á fætur öðrum í gjaldþrot vegna smá vanskila ?
 
Michael Moore
 
Moore var að frumsýna nýja mynd sem hann kallar Capitalism: A love story. Þar fer hann ofan í saumana á starfsemi stóru bankanna og vogunarsjóðanna í USA og spillinguna á milli stjórnmálamanna og starfsmanna Wall Street.
 
Moore sagði í ræðu sinni við frumsýninguna, " að í mörgum ríkjum Bandaríkjanna væru fjárhættuspil bönnuð með lögum. En starfsemin á Wall Street er eitt allsherjarfjárhættuspil þar sem peningar annarra eru að veði."
 
úpps kannast einhver við þetta ?
 
 
 
 

Raggi Reykás.

steingrimur_j_sigfusson Bullukollur.
 
Steingrímur J. Sigfússon er búinn að ómerkja sjálfan sig og stefnu VG með framgöngu sinni í ESB málinu.
Það er alveg stórkostlegt að hann styðji aðild að ESB núna eftir að hafa margoft lýst því yfir fyrir kosningar að VG og hann sem formaður flokksins myndu aldrei styðja inngöngu í ESB.
 
Við erum með allt niðrum okkur, við höfum enga samningstöðu, við fáum ekkert með því að ganga í ESB.
Hvers vegna að eiða 2-3 þúsund miljónum í aðildarviðræður og 70% þjóðarinnar er á móti.
 
Ragnar Reykás.
 
Ragnar Reykás  er fígúra sem þeir félagar í Spaugstofunni hafa búið til og gert ódauðlega.
Steingrímur J. Sigfússon er sami karakterinn og Ragnar Reykás, hann stendur ekki með sjálfum sér heldur fer hring eftir hring í skoðunum sínum, og endar svo í andstöðu við sjálfan sig að lokum.
 
Skoðum nýleg dæmi.
 
Allt upp á borðið.
Felum Icesave samninginn.
 
Aldrei í ESB.
Förum í aðildarviðræður.
 
Aldrei að borga Icesave.
Borgum allt með 5,5% vöxtum.
 
Þjóðin greiði atkvæði um stór mál.
Icesave er of flókið til að kjósa um.
 
 
Er þetta þingmaður eða ráðherra sem er traustsins verður ?
 
Mitt svar: Nei.
 
 
 
 
 
 

Ótrúlegt

sjv_jpg_550x400_q95
 
Snillingur.
 
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga töldu meistara Karl Wernersson
vera viðskiptafræðing ársins 2008.
 
Hvað hafði Kalli unnið sér til frægðar til að hljóta þennan heiður ?
 
Jú þessum snilling tókst að láta Sjóvá tapa yfir 30.miljörðum árið 2007.
Og fá samt rúmlega helminginn af því í arðgreiðslu.
 
Þetta þótti félögum hans í félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga alveg frábært afrek.
 
...................................................................................
 
Þetta sýnir og sannar að það er eitthvað meira en lítið að í viðskiptadeild Háskólans.
Að heiðra menn fyrir að fremja glæpi.
 
.....................................................................................
 
Svona töffara á að tjarga og fiðra.

Land ræningjanna.

thumbnail_260x173Þetta verður bara betra og betra.
 
Það er ekki hægt að segja annað en að Karl Wernersson hafi mjólkað kúnna vel og duglega.
Þessir glæpamenn eiga engan sinn líkan, sem aðaleigandi Sjóvár lét hann fyrirtækið greiða 170% hærri arðgreiðslur fyrir árið 2007 en sem námu hagnaði af rekstrinum.
 
Var þetta viðskiptasnilld ?
Eða var þetta stórglæpur ?
Svari nú hver fyrir sig.
 
Bankastjóri þeirra Wernersbræðra viðskiptafrömuðurinn og þingmaðurinn Tryggvi Þór Herbertsson dansaði örugglega með þeim bræðrum í þessum gjörningi.
Forstjórinn Þór Sigfússon fékk örugglega góða þóknun fyrir að vera þægur og dansa með.
 
Mikið svakalega eru Kalli og félagar heppnir að búa á Íslandi.
Á Íslandi fá þeir bara áminningu.
En í siðmenntuðu landi yrðu þeir örugglega dæmdir í 50 ára fangelsi og eignir gerðar upptækar.
 
Og eitt annað sem er alveg stórkostlegt.
Það er að Kúludrottningin Þorgerður Katrín og Tryggvi Þór valsa um sali Alþingis sem þingmenn.
 
 

mbl.is Arðgreiðslur Sjóvár árið 2007 meiri en hagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja afsala sér sjálfstæðinu.

Jæja þá eru vitringarnir búnir að skrifa undir.
Mér finnst að ESB sinnar ættu að lesa þetta
ljóð eftir Jónas Hallgrímsson sem heitir Ísland
Yfir minnst tvisvar og mjög hægt.
 
thingvellir02
 
Ísland, farsældafrón
og hagsælda, hrímhvíta móðir!
Hvar er þín fornaldarfrægð,
frelsið og manndáðin bezt?

 

Allt er í heiminum hverfult,
og stund þíns fegursta frama
lýsir sem leiftur um nótt
langt fram á horfinni öld.

 

Landið var fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár,
hafið var skínandi bjart.

 

Þá komu feðurnir frægu
og frjálsræðishetjurnar góðu
austan um hyldýpishaf,
hingað í sælunnar reit.

 

Reistu sér byggðir og bú
í blómguðu dalanna skauti,
ukust að íþrótt og frægð,
undu svo glaðir við sitt.

 

Hátt á eldhrauni upp,
þar sem ennþá Öxará rennur
ofan í Almannagjá,
alþingið feðranna stóð.

 

Þar stóð hann Þorgeir á þingi,
er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir,
Gunnar og Héðinn og Njáll.

 

Þá riðu hetjur um héruð,
og skrautbúin skip fyrir landi
flutu með fríðasta lið,
færandi varninginn heim.

 

Það er svo bágt að standa í stað,
og mönnunum munar
annaðhvort aftur á bak
ellegar nokkuð á leið.

 

Hvað er þá orðið okkar starf
í sex hundruð sumur?
Höfum við gengið til góðs
götuna fram eftir veg?

 

Landið er fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar,
himinninn heiður og blár,
hafið er skínandi bjart.

 

En á eldhrauni upp,
þar sem ennþá Öxará rennur
ofan í Almannagjá,
alþing er horfið á braut.

 

Nú er hún Snorrabúð stekkur,
og lyngið á Lögbergi helga
blánar af berjum hvert ár,
börnum og hröfnum að leik.

 

Ó, þér unglinga fjöld
og Íslands fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð
fallin í gleymsku og dá!

Guð blessi Ísland.
 

mbl.is Skrifar undir með fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sleifar vinnubrögð.

althingishus Óvönduð vinnubrögð.
 
Ég skil ekki hvernig þessari blessaðri ríkistjórn datt í hug að leggja umræðu um ESB aðild fram án þess að upplýsingar um kostnað aðildarviðræðna lægi fyrir.
 
Enn og aftur eru menn ekki að vinna vinnuna sína á þinginu, það virðist ekki þekkjast á hinu há Alþingi það sem menn kalla fagleg vinnubrögð.
 
Svo eru menn argir út í Guðfríði Lilju og segja hana bara vera að tefja fyrir. Sannleikurinn er sá að Guðfríður Lilja er að vinna vinnuna sína á meðan aðrir þingmenn sofa.
 
 

mbl.is Fundi utanríkismálanefndar um ESB-mál frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæponar.

bjorgolfsfedgar-eimskip Rausnarlegir feðgar.
 
Björgólfs feðgarnir hafa gert Nýjakaþingi tilboð um að greiða fjörutíu til fimmtíu prósent af tæplega sex miljarða skuld þeirra við bankann.
 
Þessir glæponar hafa þegar veðsett þjóðina í botn.
 
Fordæmi
 Ef bankinn samþykkir þetta nýja betli tilboð þeirra feðga þá er komið fordæmi fyrir niður fellingu lána. Þá eiga allir rétt á að fá lánin sín felld niður í það minnsta um helming.
 
Annars er bankinn kominn með gott fordæmi. Jú hefur hann ekki afskrifað 50 miljarða lán hjá stjórnendum bankans ?
 

mbl.is Bankastjóra Kaupþings hótað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðhátíð.

Canada_Day_clip_art
 
Þjóðhátíðar dagur Canada er í dag 1 Júlí.
 

VG=Vinar greiði ?

%7B55441239-ef2c-4f3a-afb0-73ca78c52e2f%7D_k-k-g-2007Á næstu dögum mun Katrín Jakobsdóttir Menntamálaráðherra skipa í stöðu Þjóðleikhússtjóra. Margt gott og hæfileikaríkt fólk hefur sótt um stöðuna svo að úr vöndu er að ráða.

Flokksystir Katrínar og fyrrverandi Umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir hefur sótt um stöðuna. Sumir vilja meina að hún sé nokkuð örugg með að hljóta hnossið. 

Stendur Skammstöfunin VG kannski fyrir VINAR GREIÐI

 


Fröken siðblinda.

Mynd_af_TKG_i_lit_20686-2-106Ótrúlegt en satt.
 
Þetta er bara orðið fyndið. Þorgerður er sallaróleg og sér ekkert athugavert við að hún hafi tekið tæpan miljarð að láni og láti síðan þjóðina borga brúsann. 
 
Hvað er eiginlega að ? Hvernig í ósköpunum  getur Sjálfstæðisflokkurinn haft hana sem varaformann ? Getur hún verið á þingi ? Þarf hún ekkert að gera grein fyrir sínum málum ? Hún var nú alltaf að jarma "allt upp á borðið" en hún átti greinilega ekki við að hún yrði að greina frá sínum gjörningum.
 
Auðvitað á að ganga á eignir þeirra hjóna strax.
 
Það á ekki að líðast að þetta pakk komist upp með þessa fjárglæpi eins og ekkert sé sjálfsagðara á meðan sauðsvarti almúginn berst í bökkum og fær enga fyrirgreiðslu í bönkum.
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband