21.12.2009 | 17:24
Hver er munurinn á kúk og skít ?
Gylfi á villigötum.
Gylfi Arnbjörnsson virðist ekki hafa hugmynd hvar hann er staddur í tilverunni. Er hann ekki forseti ASÍ eða er hann talsmaður Baugsfjölskyldunnar ?
Gylfi segir mikinn mun vera á Jóni Ásgeiri og Björgólfi Thor.
Gylfi er að mæra Jón Ásgeir, sem kemur kannski ekki á óvart þar sem hann er innmúraður í samspillinguna. Gylfi ætti nú frekar að beina kröftum sínum í að vinna fyrir alþýðu þessa lands eins og hann var kosin til. Veit Gylfi ekki að það er verið að hækka skattana á alþýðufólkið veit Gylfi ekki að virðisaukaskatturinn fór í 25,5% í dag ? Gylfi vaknaðu og taktu upp hanskann fyrir Alþýðu þessa lands en ekki vera að mæra þá sem eru Þjóðinni verstir.
Gylfi það er enginn munur á kúk og skít.
Tap Jón Ásgeirs sem fellur á þjóðina er um 1100 miljarðar.
Jón Ásgeir hefur verið í Íslensku viðskiptalífi í 20 ár.
20 X 52 vikur.
Sem gera 1040 vikur.
Semsagt Jón Ásgeir hefur kostað Íslenska alþýðu um miljarð á viku í 20 ár.
Já miljarð á viku í 20 ár.
Og þessi vesalingur gat ekki einu sinni borgað sitt eigið brúðkaup.
Munur á Björgólfi og Högum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Jenni minn
Það er enginn munur á kúk og skít. Pabbi sagði nýlega við mig að það væri enginn munur og var að miða okkur feðgin saman. Ég sé engan mun á þessum tveimur. Báðir hafa þeir verið óheiðarlegir í viðskiptum og alþýðan þarf að líða fyrir gjörðir þeirra í dag en ekki þeir sjálfir? Klikkað dómskerfi.
Samskipti Gylfa og stjórnarinnar var svo ljúft og hann var talsmaður þeirra í ESB málum en það gerði hann á meðan hann var á kaupi hjá alþýðunni. Nú sýnist mér einhver snurða kominn á þennan ljúfa þráð.
Ég er mjög ósátt að Gylfi skuli nota aðstöðu sína og boða ESB. Margir af þeim sem hann er að vinna fyrir vilja ganga í ESB og margir ekki. Hann hefur ekki fengið neitt umboð frá félögum sínum að boða ESB.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.12.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.