Spilin minna á trúnna.

 

 

Úr dagbók prestsins í Danmörku

 Í gamla daga átti fólk það til að segja í gamni; "Nú skulum við fletta svolítið í sálmabókinni." Þetta þótti nokkuð skemmtilegur leikur. Þá höfðu spilin margs konar merkingu, ekki síður trúarlega en veraldlega. Trúræknir menn töldu þó allt til vorra tíma spilamennsku vera af hinu illa, og beinlínis syndsamlegt að stytta sér stundir með spilaleikjum. Í dagbók sína skrifar presturinn eitthvað á þessa leið. Nýlega rakst ég á gamla sögu hjá vini mínum, sem mig langar til þess að segja frá.: "Hermaður var í kirkju. Meðan á guðsþjónustunni stóð, tók hann upp spil og skoðaði þau nákvæmlega. Svo óheppilega vildi til, að einn af yfirmönnum hans var í kirkjunni og sá til hans. Kærði hann hermanninn fyrir herforingjanum, en hann var enginn annar en sá sem síðar varð Friðrik konungur sjöundi. Hermaðurinn var tekinn til yfirheyrslu þegar í stað. Hann sagði prinsinum að hann hefði aldrei lært að lesa, en móðir sín hefði kennt sér, hvað spilin táknuðu. Prinsinn vildi fá nánari skýringu á því, og fékk hana skilmerkilega hjá hermanninum.

playcard

 Þegar ég sé Ás minnir það mig á, að það er bara einn Guð og hann hefur skapað himin og jörð. Tvistur segir mér, að Jesús sé bæði guðlegur og mannlegur. Þristur segir mér, að það séu þrjár persónur í trúnni, Faðir, sonur og heilagur andi. Fjarkinn minnir mig á guðspjöllin, Mattheusar-, Markúsar-, Lúkasar-, og Jóhannesarguðspjöll. Fimman táknar fimm kraftaverk Jesú. Sexan segir mér, að það séu sex vinnudagar í vikunni. Sjöan að halda hvíldardaginn heilagan. Áttan, að það voru aðeins átta sem komust af í syndaflóðinu. Nían og Tían segir frá því, þegar Jesús læknaði tíu líkþráa og níu voru vanþakklátir. Laufagosann setti setti hermaðurinn til hliðar og sagði að hann væri einskis nýtur. Kóngarnir táknuðu vitringana þrjá frá Austurlöndum, sem tilbáðu Jesúbarnið. Drottningarnar táknuðu Maríu mey og konurnar þrjár sem fóru til grafarinnar. Gosarnir þrír voru böðlarnir sem krossfestu Jesú. Það eru 12 mannspil spilunum og jafnmargir mánuðir í einu ári. Spilin eru 52 og jafnmargar vikur eru í árinu. Það eru 365 punktar í spilunum eins og dagarnir í einu ári. Lauf þýðir kross Krists. Spaði gröf hans. Tígull höfuðáttirnar fjórar. Hjarta segir að maður eigi að sækja kirkju af trú og gleði. Gott sagði prinsinn, en hvað með laufagosann? Hann táknar Júdas sem sveik Jesú - eða yfirmanninn sem kærði mig. Hermanninum var ekki refsað, heldur var honum launað fyrir útskýringarnar á spilunum, sem hinn hái herra hafði aldrei heyrt fyrr."

Iho6fb4yD9KX

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Guðrún Sigurjónsdóttir

Skemmtileg líking Jenni....getur verið að spilin séu búin til skv. þessu? Annars hef ég aldrei skilið af hverju trúuðum er svona illa við spil....þetta eru bara spil, gerð úr pappír. Höfum bara gaman af þessu og spilum rassinn úr buxunum.....

Adda Guðrún Sigurjónsdóttir, 20.12.2009 kl. 19:35

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta er þrælskemmtilegt hjá þér Jens! Aldrei datt mér í hug að hægt væri að tengja neitt trúatlegt við spilastokk. Maður verður eins og heilagur maður af að leggja kapal í næsta skipti!!

Óskar Arnórsson, 20.12.2009 kl. 19:54

3 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Já Adda mín höfum bara gaman og spilum.

Óskar það verður í það minnsta heilög athöfn að leggja kapal

Jens Sigurjónsson, 20.12.2009 kl. 22:54

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður Jenni minn

Skemmtileg lesning. "Sjöan að halda hvíldardaginn heilagan." Við þurfum endilega að kvitta hjá Guðsteini núna en hann og Mofi deila um hvíldardaginn einu sinni enn.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.12.2009 kl. 23:19

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Maður ætti kanski að klæðast einhverjum viðhafnarbúningi í næsta skipti sem maður tekur á spilum..

Óskar Arnórsson, 20.12.2009 kl. 23:23

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Hæ aftur. 

Búin að setja inn slóðina þína á bloggið hans Guðsteins vinar okkar.

Margir eru á móti spilum vegna þess að oft eyðir fólk miklum tíma í spil. Margir eru á móti spilum vegna þess að það er verið að nota peninga og sumir hafa orðið gjaldþrota.

En í dag erum við að spila allskyns leiki sem eru algjör tímaþjófur og ég persónulega sé engan mun þar á.

Guð veri með ykkur

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.12.2009 kl. 23:31

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Enn blogg Rósa? Er blogg ekki tímaþjófur? Ég held nú það. Það er komin meðferðarstöð fyrir blggista, Facebookista og hvaðeina hér í Svíþjóð. Enn mér finnst allt í lagi að vera háður einhverju sem er gaman og gagnlegt eins og mér finnst bloggið vera.

Samt á maður að passa sig á þessu bloggi.

Ég er búin að kópera og stela pistlinum þínum Jens! Og reyndar myndinni líka... 

Óskar Arnórsson, 20.12.2009 kl. 23:38

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Jú Óskar minn.

Blogg og facebook er tímaþjófur. Ef þú ferð inná síðuna mína á facebook þá birti ég þar mynd af Farm Ville búgarði í dag sem ég er að leika mér í á facebook.  Fyndin tilviljun. Ég skrifaði þar að þessir leikir sem ég er að leika mér á væri algjör tímaþjófur.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.12.2009 kl. 23:50

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já Rósa mín! Mér og Facebook kemur ekki saman almennilega. Ég hef reynt að læra á hana, og hún er bara of flókinn fyrir mig. þú mannst nú að ég þurfti hjálp við að læra að setja upp MBL bloggið.

Er bara þarna af því að svo margir eru þar. Ég les mail sem koma þar einstaka sinnum...

Óskar Arnórsson, 21.12.2009 kl. 00:00

10 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Gott hjá þér Óskar að kópera þetta, maður verður nú í það minnsta að raka sig áður en maður leggur spilin.

Rósa mín ég ætla að líta inn til strákana.

Eru ekki öll hobbý tímaþjófur ?

Guð veri með ykkur.

Bestu kveðjur/Jenni

Jens Sigurjónsson, 21.12.2009 kl. 00:01

11 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Jú Jenni minn en sum skynsamleg en önnur ekki. Það er t.d. hollt að fara út og fara inná golfvöll. Öll hreyfingin sem fólkið fær á meðan það er að leika sér. Tvöfaldur gróði þar.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.12.2009 kl. 00:09

12 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Satt er það Rósa mín.

Jens Sigurjónsson, 21.12.2009 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband