Þórhallur ætti að hafa vit á því að þegja.

 
sigmundur-david Vitgrannir forustumenn framsóknar.
 
Þeir fóru alveg á kostum vitleysingarnir þeir Höskuldur og Sigmundur.
Vitleysingar ?  Já þeir sönnuðu svo um munar í gær að vitleysingar eru þeir að sönnu. Þeir urðu bæði sér og þjóðinni til stór skammar.
Sjá og heyra bullið í Sigmundi í sjónvarpi og útvarpinu í gær, ég hef sennilega aldrei fengið eins mikinn kjánahroll og í gær er ég hlustaði á hann bulla og bulla, og það sem versta var hann trúði sjálfum sér.
 
Hélt Sigmundur Davíð virkilega að Norska Senterpartiet sem er smáflokkur með um 6 % þingmanna gæti bara reddað 100 miljörðum NKR sí svona handa okkur ?
 
Veit Sigmundur að 100 miljarðar Norskar krónur eru 2145 miljarðar Íslenskar Krónur ?
Og að það jafngildir rúmum 16 miljörðum bandaríkjadölum ?
Veit Sigmundur að AGS prógrammið með norðurlöndunum hljóðar upp á 5,2 miljarða bandaríkjadollara ?
 
Hélt þessi vitleysingur að Jens Stoltenberg Forsætisráðherra og ríkistjórn hans hefðu ekkert með málið að gera ?
 
Sigmundur hugsaðu þig tvisvar um áður en þú veður í sjónvarpið og hrópar ásakanir hægri vinstri á allt og alla.
Ég á aðeins eitt gott ráð handa þér og það er hafðu vit á því að halda þér saman.
 
Talandi um hægri vinstri.
Það var annað sem var alveg sorglegt að horfa upp á í sjónvarpinu í gær það var KÚLUDROTTNINGIN Þorgerður Katrín.
Sjá þennan ómerking koma fram fyrir alþjóð og gjamma um að stjórnin geti ekki þetta eða hitt.
Þorgerður segðu frekar þjóðinni hve miklu þú náðir í arð af kúluláninu ykkar hjóna ?
Duttu 50 millur inn á heftið svona þegjandi og hljóðalaust ?
Upplýstu okkur frekar um þetta, en að vera gjamma einhverja vitleysu því engin tekur mark á þér lengur.
 
 
 

mbl.is Líst illa á fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt hjá þér, Gög og Gokke gerðu sig að algjörum fíflum í gær.  Voru það reyndar fyrir.  Þetta eru aumir lýðskrumarar og í raun hálfvitar.

Óskar (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 02:02

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jenni minn.

Leitt að Framsóknarfélagar skildu gera svona á sig. Skil ekki af hverju þeir leituðu ekki heimilda hjá fleirum en þessum eina manni sem ræður nú ekki í Norge.

Norðmenn eru undir hæl Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þeir væru búnir að hjálpa okkur ef þeir vildu og eins ef þeir þyrðu. Bara Færeyingar hafa hjálpað okkur og í raun verðskulduðum við ekki hjálp þeirra því ég held að við höfum ekkert gert þegar þeir gengu í gengum sína kreppu.

Ég er ekki hrifin af gorgeirnum í Þorgerði Katrínu. Sjálfstæðismenn vinna nú ekki atkvæði út á hana meir. Hún er illa brennd eftir að hafa dýrkað Mammon.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.10.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband