Er Jói heill ?

Johannes,_klippt Samspillingar liðið komið með kvíðakast.
 
Jóhannes Jónsson oft kenndur við Bónus, var í hressilegu viðtali við DV núna um helgina. Jóhannes telur sig geta sjúkdómsgreint fólk, og það kemur berlega fram í þessu viðtali hvað hann hefur mikla andúð á sjúku fólki.
 "Það er veruleikafirring að gera óheilbrigðan mann að ritstjóra Morgunblaðsins"
Jóhannes telur Davíð vera sjúkan og hann vill ekki sjá veikt fólk á vinnumarkaði.
 
Hver er veikur og hver ekki ?
 
Jóhannes ætti að hafa vit á því að halda kjafti og skammast sín, ef einhverir eru óheilbrigður í þessu þjóðfélagi þá eru það feðgarnir í Bónus.
Jói og sonur eru búnir að spyrða nokkrum milljónum í skuld á hvern Íslending, já og finnst það bara í lagi. Þessir aumingjar hafa vaðið yfir allt og alla á skítugum skónum í mörg ár og sjá ekkert athugavert við það.
 
Eftir að Davíð neitaði að taka við 300 millunum sem Baugarnir reyndu að koma á hann, hefur Jói verið í skítkasti við Davíð.
 
Jói er seigur að nota DV ef hann þarf að skvetta skít á einhvern, jú hæg eru heimatökin.
Hver man ekki eftir heilsíðu auglýsingunum í DV þar sem Jói hvatti Sjálfstæðismenn að strika yfir nafn Björns Bjarnarsona. Þar notaði Jói setningu eins og "út með siðspillinguna".
 
Jói kann ekki að skammast sín enda maðurinn mengaður af óheiðarleika.
 
 
 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Guðrún Sigurjónsdóttir

Jóhannes í Bónus, Jón Ásgeir, Davíð Oddsson....sami skíturinn undir þeim öllum!

Eitt er víst og það er að Mogginn kemur aldrei inn fyrir mínar dyr með hrokagikk sem ritstjóra!

Adda Guðrún Sigurjónsdóttir, 28.9.2009 kl. 23:58

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Satt er það.

En Adda verslarðu enn í Bónus ?

Jens Sigurjónsson, 29.9.2009 kl. 00:12

3 Smámynd: Adda Guðrún Sigurjónsdóttir

Já, stundum versla ég enn í Bónus ef eru góð tilboð.....

Adda Guðrún Sigurjónsdóttir, 29.9.2009 kl. 09:20

4 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Ef fólk getur verslað við Bónusfeðgana, þá er ekkert mál að lesa Moggann.

Jens Sigurjónsson, 29.9.2009 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband