23.9.2009 | 15:17
Gjaldþrotaviðskipti.
Léttum á áhyggjunum.
Nú er orðið ansi vinsælt hjá hinum almenna borgara á Íslandi að fara í svo kölluð gjaldþrotaviðskipti.
Þannig létta menn á áhyggjum hvers annars.
Hvað eru gjaldþrotaviðskipti ?
Jú gjaldþrotaviðskipti njóta sívaxandi vinsælda meðal hins almenna borgara í landinu.
Fólk einfaldlega skiptist á gjaldþrotum, tekur yfir skuldir í búum hvers annars.
Þetta er alveg kjörin leið til að minnka stressið og sársaukann sem gjaldþrotið veldur.
Því með svona gjörningi situr þú í gjaldþrotabúi sem þú þekkir ekki neitt og hefur engar persónulegar taugar til.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.