17.9.2009 | 01:16
Enn versnar það :
Enn versnar orðspor okkar:
Nú er Íslendingur (Grundfirðingur)á fimmtugsaldri talinn hafa svikið milljarða út úr sænskum sparifjáreigendum.
Þessi þjófur á að hafa fengið þúsundir Svía til að afhenda sér fé gegn loforði um háa ávöxtun í gjaldeyrisviðskiptum.
Sveinn Friðfinnsson en svo heitir víst jarlinn, hefur bæst í hóp víkinganna sem hafa svert æru Íslendinga á alþjóðavettvangi.
Það er skömm af þessum aumingjum .
Íslendingur sagður á bak við milljarðasvikamyllu í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Jenni minn
Hvað verður það bara næst? Fólk leggur sig lágt í dýrkun á Mammon.
Þetta er viðurstyggilegt athæfi.
Megi almáttugur Guð fyrirgefa þessum manni.
Guð veri með þér og þínum
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.9.2009 kl. 12:56
Sæl Rósa mín.
Hvar endar þetta ?
Já dýrkun á Mammon er ekki fólki til framdráttar. Það höfum við fengið að sjá undanfarið.
Guð blessi þig .
Kveðja / Jenni
Jens Sigurjónsson, 17.9.2009 kl. 14:30
Hæ Jenni minn.
Já, það er allavega á hreinu að næst þegar ég fer til útlanda mun ég segjast vera Færeyingur....maður skammast sín orðið fyrir þjóðernið!
Þessi Sveinn ber ekki sitt barr eftir þennan fréttaflutning, það á enginn eftir að treysta honum meir. Og bara eins gott! Ótrúlegt hvað menn geta lagst lágt og búið svo eins og fínir menn í smábæjum og átt þar heilu fyrirtækin...
Held bara að það sé betra að vera heiðarlegur í öllum sínum gerðum þó maður sé um leið mjög blankur....
Kveðja, Adda systir
Adda Guðrún Sigurjónsdóttir, 18.9.2009 kl. 00:32
Já Adda það er skárra að vera heiðarlegur og blankur heldur en að líkjast þessum kumpánum.
Bestu kveðjur / litli bróðir.
Jens Sigurjónsson, 18.9.2009 kl. 03:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.