2.4.2009 | 19:51
Álfur út úr hól.
Foringinn.
Davíð Oddsson er ræðusnillingur svo mikið er víst og það verður ekki af honum tekið. Hann flutti alveg magnaða ræðu á landsfundi Sjálfstæðismanna um síðustu helgi, sú ræða á eftir að verða klassík er fram líða stundir. Hann sagði meðal annars að Jóhanna Sigurðar væri eins og álfur út úr hól, og líkti sjálfum sér við sjálfan Jesú Krist.
Kveðskapur frægasta flakkara Íslandsögunar meistara Sölva Helgasonar á vel við eftir ræðu Davíðs.
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur,
ég er djásn og dýrmæti,
Drottni sjálfum líkur.
Enn svona í alvöru, hver er eins og álfur út úr hól ?
Athugasemdir
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Ég vil fá stöðuna mína aftur. Mannfílan sem gegnir nú embætti finnst ekki einu sinni á google.com.
Sæll Jenni minn
Sumir hlægja ahahahaha Góður
Guð veri með okkur
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.4.2009 kl. 21:17
Rósa mín. Davíð er snillingur í því að stílfæra ræðu, það er allt í þessari ræðu, hún er full af hroka, fyrirlitningu, húmor og ég tala nú ekki um sjálfsdýrkunina.
Guð blessi þig / Jenni
Jens Sigurjónsson, 2.4.2009 kl. 21:32
Hahahaha góður ertu! Þessi fótósjoppaða mynd er að verða jafn klassisk og ræðan kemur til með að verða í framtíðinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2009 kl. 21:45
Sæll og blessaður
Sammála. Maðurinn er fullur af hroka og sjálfsdýrkun. Framkoma hans gagnvart fólki sem hefur starfað með honum er ekki hægt að hrópa húrra yfir. Myndirnar af honum eru lýsandi hann og hans innræti. Sammála Ólafi Ragnari en hann lét orð falla á Alþingi forum daga um vin sinn Davíð.
Margir í kringum mig sjá ekki sólina fyrir Davíð. Ég bara get ekki skilið það.
Shalom/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.4.2009 kl. 22:06
Já Ásthildur myndin er ansi góð.
Rósa mín, Davíð átti oft mjög góða spretti í pólitíkinni, en hann átti að hætta fyrr og alls ekki að fara í seðlabankann. Ef hann hefði hætt í pólitíkinni 1 - 2 árum áður en hann gerði, þá hefði sagan geymt hann sem einn mesta stórmálaskörung Íslandssögunnar.
Shalom/Jenni
Jens Sigurjónsson, 2.4.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.