Skrópagemlingar.

big-Alingi_jpg_340x600_q95Það er með ólíkindum að Forseti Alþingis þurfi að beina því til formanna þingflokkana að þeir hafi aga á sínu liði. Eru þetta smákrakkar eða hvað ?

Það er orðið ansi hart ef Forsetinn þarf að hafa kladda og skrá inn í upphafi þingfundar hvaða þingmenn eru mættir til starfa. En mér sýnist að hjá því verði ekki komist. Og svo ætti að birta á síðu Alþingis hvernig menn hafa mætt á þingfundi, þá getur þjóðin séð hverjir eru mestu skrópagemlingarnir.

Þetta hátterni þingmanna er mikil vanvirðing við þjóðina og hið háa Alþingi.


mbl.is Þingmenn mæta illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Ef við mættum of seint í vinnuna þá var dregið af okkur þann tíma sem okkur vantaði. Það á að draga af þingmönnum kaup en þeir eru í vinnu hjá okkur öllum og við líðum ekki svona droll.  Svo væri ráð að setja á mætingarbónus á þingmenn.

Mikið var gaman að skoða myndirnar sem þú tókst á bryggjunni. Iðar allt af lífi. Því miður hálf dauft hér. Hér sjást ekki stór skip svo vikum skiptir. Aftur á móti er grásleppuvertíð hafin og smá líf hérna rétt hjá mér.

Hitti pabba þinn inná Heilsugæslustöð í dag. Lá vel á honum eins og venjulega. Hann og pabbi voru í sömu erindagjörðum, blóðprufur og alles.

Fjör á blogginu.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.3.2009 kl. 23:04

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Sæl Rósa mín.

Ég er farinn að halda að margir þingmenn líti ekkert á Alþingi sem vinnustað heldur sem þægilegt frístundarheimili.

Já hérna iðar líf á bryggjunum alla daga.

Gott að það hafi legið vel á körlunum.

Guð blessi þig og þína.

KV/Jenni.

Jens Sigurjónsson, 18.3.2009 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband