7.3.2008 | 23:05
Er ekki í lagi.
Margir verða ruglaðir með víni.
Þó svo maður hafi nú oft verið uppátektarsamur hér áður fyrr þegar maður fékk sér í glas,
þá datt manni nú aldrei í hug að taka vínið í nefið.
Ég held nú að aumingja stúlkan hafi bara verið búinn að fá sér fullmikið í tánna þetta kvöld.
Þannig að hún hafi bara ekki haft stjórn á því hvar sopinn lenti í grímunni hennar.
En allavega held ég að það hljóti að vera skemmtilegra að koma sopanum rétta leið.
Skál.
Winehouse tekur vodka í nefið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Jens. Þetta jaðrar við að vera brandari. Skemmtileg skrifin þín hér fyrir um þessa frétt. Við sungum í denn tak í nefið, tak í nefið og svo snúa allir sér í hring, Atjú En að það sé vín sem átti að taka í nefið datt manni ekki í hug þá og ekki heldur núna fyrr en ég las þessa frétt hjá þér.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.3.2008 kl. 00:19
Sæl Rósa.
Það er ekki öll vitleysan eins svo mikið er víst. En þessi frétt kom mér til að hlægja nokkuð hressilega.
Jens Sigurjónsson, 8.3.2008 kl. 00:31
Áhrifin koma örugglega fyrr ef áfengið er tekið í gegnum nefið. Spurning hvort það ætti ekki að fara að framleiða vodka í nefdropaglösum. Svona fyrir þá sem eiga litla aura
Margrét St Hafsteinsdóttir, 8.3.2008 kl. 13:11
Það sem mér finnst svo merkilegt við svona er, hvernig dettur fólki þetta og ýmislegt annað í hug!!! Skondið
Rúna Guðfinnsdóttir, 8.3.2008 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.