24.6.2007 | 23:08
King of the road.
Drottningar þjóðvegarins.
Ég held að hinn eini og sanni konungur (drottning) þjóðvegarins sé Íslenska sauðkindin. Við þekkjum öll þessa skemmtilegu og sérvitru skepnu sem við sjáum víða um landið. En hinn almenni ferðalangur sér hana ævinlega á miðjum þjóðvegum landsins og kemst auðveldlega í návígi við hana þar, því að þessar þjóðvegadrottningar vilja helst ekki gefa veginn eftir og þarf því oft að þeyta bílflauturnar til að þær fari út í vegarkant svo ferðalangarnir komist áfram.
Það getur oft verið varasamt að hitta á þessar elskur á vegum landsins, förum því varlega svo komast megi í veg fyrir slys á mönnum og sauðfé.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.