5.8.2010 | 15:53
smá djók.
Fleygar setningar úr minningargreinum.
- Helga lést þennan dag klukkan 4. Hún hafði ætlað að eyða deginum í annað.
- Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.
- Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrekprófun í Hjartavernd en kom þaðan liðið lík.
- Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.
- Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.
- Á þessum fjölbreytta lífsferli kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsu þjóðerni, þar á meðal Indíánum og Kínverjum. hann lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og norðurlandamálin.
- Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveitum.
- Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi.
- Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu.
- Hún hafði það sterka skapgerð að smá rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.
- Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní.
- Þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinn fingur.
- Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.
- Orð þessi eru skrifuð til að bera Sveini kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans þótt nú nálgist 10. árið frá fráfalli hennar.
- Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn.
- en dauðinn sigraði fyrr en vonir stóðu til.
- Bergur var vandaður maður sem gott var að drekka með kaffi, því hann var hafinn yfir það smáa. Þú gekkst inn í nýjan heim og fékkst þér sæti við borð. Bergur var andstæðan sjálf, félagsvera en gekk þó aldrei í neitt félag.
- Bréf barst að heiman: Tóti frændi er dáinn. Það hlýtur að hafa verið gott að vera kind í fjárhúsunum hans Tóta frænda.
- Drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa.
- Jafnvel dauðann sem alla leggur sigraði hún á sinn hátt með bros á vör.
- Eins og svampur sat ég við fótskör hennar.
- Við andlát Dísu minnist ég þess hlýja kærleiks, áhuga og alúðar sem hún sýndi mér sem barni, sérstaklega þegar ég komst á unglingsár og þegar ég varð fullorðinn.
- Enda lét hún ekki deigan síga fyrr en í rauðann dauðan.
- Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Þessi orð koma mér í hug er ég minnist afa. Hann var á 93.aldursári þegar hann lést.
- Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.
- En jólaboðin hjá Betu breyttust gegnum árin. Börnin gengu út hvert af öðru.
- Það síðasta sem hún hugsaði áður en hún dó...
Athugasemdir
Góður! Takk fyrir!
Björn Birgisson, 5.8.2010 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.