Mesta bankarán sögunar.

 ingibjorg-palmadottir-jon-asgeir-johannesson

Eru þetta mestu bankaræningjar sögunnar ?

Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg Pálmadóttir, Pálmi Haraldsson, Þorsteinn Jónsson, Lárus Welding, Jón Sigurðsson og Hannes Smárason Já og ekki má gleyma Pricewaterhousecoopers sem var endurskoðandi Glitnis á þessum tíma og er einnig stefnt fyrir meintan hlut í svikunum.

Það á auðvitað eftir að koma í ljós. En þetta eru engar smá ákærur, ákærð fyrir að hrifsa til sín völdin yfir bankanum og hreinsa síðan allt úr bankanum eða um 260 miljarða sem þau notuðu síðan í sína eigin þágu, og skildu bankann eftir alslausan. 

Þegar Seðlabankinn þjóðnýtti Glitni þá varð vitringurinn Jón Ásgeir snarvitlaus og fór hamförum í fjölmiðlum og úthúðaði Davíð Oddsyni meðal annars og kallaði þjóðnýtinguna mesta bankarán sögunar.

En nú er heldur betur komið í ljós hverir eru hinir einu og sönnu bankaræningjarnir. En Jón Ásgeir laug engu um það að þetta var stærsta bankarán sögunar.

Hugsanlega er líka um skattsvik að ræða sem eru tekin mjög alvarlega í USA.

Nú eru þau skötuhjú Jón Ásgeir og Ingibjörg víst á leiðinni til LA á næstu dögum í boði 365 miðla, sennilega verður þetta lið sett í járn um leið og þau koma á Ameríska grund. Og ef þau verða fundin sek um þessar ákærur sem þau eru ákærð fyrir þá verða þau að dúsa í fangelsum þar ytra í nokkra áratugi.En sennilegt er nú að þetta lið hafi ekki kjark til að fara í þessa LA reisu.

Nú undanfarið hafa stjórnendur Arion/ Kaupþing eða hvað þetta heitir nú aftur, endilega viljað að Bónusliðið stjórnaði áfram verslunarkeðjunum hérna heima. Ætli bankamennirnir fari nú ekki að sjá það að Bónusfjölskyldan er nú ekki heppilegasti aðilinn til að sjá um verslunar batteríið.

En svona í lokin hvað ætli Bubbi verndarengill Bónusmanna hafi um þetta mál að segja ?

 


mbl.is Höfða mál gegn Jóni Ásgeiri og tengdum aðilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já eimmitt það.

fbl_090805_sigur_ur_einarsson_sta_reyndir_ur_lanabok

Aumingja Siggi.

sigur%C3%B0ur+einarsson

Aumingja Siggi þorir ekki heim.

Siggi var úti með milljarð í vasa
allar hann hafði þær í Lundúnaborg.
Smeykur um holtin var hann að brasa
almannarómur vill draga hann á torg.
Gagg, gagg, gagg segir Hreiðar á Hrauni.
Gagg, gagg,gagg segir Hreiðar á Hrauni.
Gráleitum augunum honum lambið launi,
aumingja Siggi hann þorir ekki heim.

 


mbl.is Interpol lýsir eftir Sigurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmæti sjávarafurða dregst saman í austur Kanada.

 07081104

 Verðmæti sjávarafurða á Nýfundnalandi og Labrador í austur Kanada hafa dregist verulega saman á síðasta ári. En Nýfundnaland og Labrador eru eimmitt þau svæði sem harðast urðu úti er þorskstofninn hrundi við Kanada árið 1990. 

 Útflutnings verðmæti á síðasta ári nam 617 miljónum evra eða um 105 miljarðar ISK. Þetta er lækkun um 22% frá árinu áður.

Efnahagslægðin í heiminum og svo styrking Kanadadollars gagnvart Bandaríkjadal eru taldar megin ástæður fyrir samdrættinum. Einnig lækkaði verð á lykiltegundum eins og rækju, humar og snjókrabba. En þrátt fyrir að staða Kanadadollars væri mjög sterk voru mjög litlar birgðir í landinu af krabba og rækju í upphafi ársins.

En góðu fréttirnar eru þær að fiskeldi í Kanada stendur mjög vel, og eru mjög bjart útlit með þann bransa á komandi árum.


Gamla góða gosið.

CanadaDryGorila

Gömlu góðu gosdrykkirnir.

Ég var að velta fyrir mér hvað margir góðir gosdrykkir hafa horfið af sjónarsviðinu, og að nú er allt komið í plast og eitthvað svo óaðlaðandi. Glerflöskurnar voru svo svipsterkar margar hverjar og drykkurinn í þeim öðlaðist ákveðinn ódauðleika, það var allt annar sjarmi yfir gosinu hér áður fyrr.

Nokkrir gamlir og góðir.

Morgan Cream Soda "rjómagos" framleitt af Efnagerð Akureyrar síðar Sana, þessi magnaði drykkur var framleiddur frá fimmta áratugnum fram á þann áttunda. Sinalco Þýski bindindisdrykkurinn en Sinalco erembotelladoramadrilenavig stytting á Sine Alcahole, sem er latína fyrir án alkóhóls. Sinalco er elsti gosdrykkur Evrópu, framleiðsla á honum hófst 1902 en hann kom til Íslands 1954 þegar Egils hóf framleiðslu á honum. Þessi drykkur er enn til, en uppskriftinni var breytt og nú er hann mikið súrari og smakkast mikið verr. Valash sætur og góður appelsínudrykkur frá Akureyri. Miranda var annar ljúfur appelsínudrykkur. Mix var blandaður ávaxtadrykkur sem kom einnig frá Akureyri. Fanta var appelsínudrykkur sem kom frá Vífilfelli árið 1976 og varð mjög vinsæll. Egils Appelsín var þó toppurinn af öllum appelsínudrykkjunum Egils sinalco-minolux-c-1961Appelsín er elsti alíslenski gosdrykkurinn sem enn er framleiddur en Egill byrjaði að framleiða þetta gæða appelsín árið 1955. 7 up var mjög vinsæll drykkur. Hi-spot var í harðri samkeppni við 7 up en það var drykkur sem kom frá Canada dry. Póló var glær og mjög bragðmikill drykkur frá Sanitas. Pommac eplagos frá ölgerðinni var framleitt á 7. áratugnum. Qhinine Water mjög rammur drykkur frá 7. áratugnum þessi drykkur var nánast 7Uplogooldeingöngu notaður í bland. Og almennt kallaður "Drottningarhland".Ginger ale var annar drykkur frá Canada Dry sem var vinsæll í bland. Fresca var vinsælt og kom á markað 1967. Spur Cola er cola drykkur frá Canada Dry og eru glerflöskurnar ódauðlegar. Svo eru auðvitað allir hinir Cola drykkirnir, Coca Cola, Pepsi, Jolly Cola, Sól kóla, Ís kóla, RC cola. Svo auðvitað Egils Maltextrakt þó svo það sé ekki gosdrykkur. En þessi eðaldrykkur hefur Egill framleitt frá árinu 1913. Nú auðvitað eru margir aðrir góðir gosdrykkir sem vantar í þessa upptalningu.

Gos í stað áfengis.

Íslendingar hafa verið gossvelgir í gegnum tíðina. Í blaðinu Austra sem var gefið var út á Seyðisfirði. Mátti lesa auglýsingu frá St.Stefánsyni árið 1896 : "Þegar þið drekkið bjór og brennivín á kvöldi, vaknið þið með timburmenn og vonda samvisku á morgnana; en mínir ilmandi gosdrykkir svala ykkur í sakleysi og einlægni. Margar nýjar tegundir komu nú með "Egill" ".

 

 


Smá lærdómur.

sidir_hnappur

 Að festa hnapp eða tölu.

Krafa nútímans er sú að herramenn séu sjálfbjarga um hvaðeina er viðkemur persónulegu hreinlæti og snyrtimennsku. Nútímamaðurinn hnýtir sitt eigið hálsbindi, burstar skó sína og straujar jafnvel skyrtur ef svo ber undir. Afar mikilvægt er einnig að herramenn geti brugðist rétt við bráðatilfellum á borð við lausa tölu.

Takið mið af meðfylgjandi mynd og fylgið eftirfarandi leiðbeiningum:

1. Þræðið tvöfaldan tvinna gegnum nálaraugað. Hnýtið fyrir endann. Saumið stutt spor hægra megin við töluna. Og svo annað spor á sama stað. Athugið að mikilvægt er að velja réttan lit á tvinna. Ekki gengur t.d. að sauma hvíta tölu á hvíta skyrtu með rauðum tvinna - slíkt er vitaskuld fáránlegt.

2. Þræðið nálina og tvinnann gegnum fyrsta gatið í hnappnum - Arnargatið, en eins og flestir vita eru götin í hnappnum nefnd eftir landvættunum: Arnargat, Drekagat, Nautgat og Risagat. Miðjusetjið hnappinn yfir fyrsta spori (meyjarspori). Stingið nálinni í næsta gat(Drekagat), alla leið gegnum efnið og dragið tvinnann í gegn.

3. Stingið tannstöngli, nál ellegar prjóni milli tvinna og hnapps og útbúið þannig spúnlykkju. Saumið tvö til þrjú spor gegnum hvert gat.

4. Dragið nálina (og tvinnann) undir hnappinn hægra megin. Fjarlægið tannstöngul, nál ellegar prjón.

5. Snúið tvinnanum tvisvar til þrisvar kringum hnappsporin til að útbúa boðlykkju.

6. Gangið frá tvinnanum undir efninu með því að hnýta endann eða taka nokkur smærri saumaspor.

 


Ísland á uppleið.

 




250px-Coat_of_arms_of_Iceland.svgÍsland er ekki lengur í hópi þeirra tíu ríkja heims, sem talin eru í mestri hættu á að stefna í þjóðargjaldþrot, samkvæmt nýjasta yfirliti CMA.

Þetta er í fyrsta skipti síðan haustið 2008 sem Ísland er ekki nefnt á þessum lista.

Já og þetta gerist þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi sagt að allt færi til fjandans ef Isesave yrði ekki samþykkt eins og skot.

Mér finnst samt athyglisvert að sjá að það eru 3 ESB ríki á þessum lista. Þarna eru Portugal,Grikkland og Lettland jú og svo er Kýpur þarna líka sem er mjög tengt ESB.

Segir það okkur ekki að fara varlega í að nálgast þetta skriffinnsku bandalag sem ESB er ?

 

Highest Default Probabilities

Entity Name Mid Spread CPD (%)
Greece907.7251.72
Venezuela1007.1549.51
Argentina959.6247.39
Pakistan711.4038.23
Ukraine615.3834.75
Portugal449.9832.16
Dubai/Emirate of443.2326.41
Iraq379.8123.61
Latvia, Republic of377.4123.06
Sicily/Region of282.1021.76

Ólína grín dagsins.

 OlinaLAN

Ólína hrokast áfram.

Ólína Þorvarðardóttir telur að framboð Besta flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum sé dýrt spaug. Ólína segir "menn verða að standa fyrir eitthvað í póltík". 

Ólína mín fyrir hvað stendur þú og hvað hefur þú afrekað í pólitíkinni ?  Mitt svar : EKKI NEITT.

Ólína getur þú ekki skilið að fólkið í landinu vill heiðarlegt fólk sem hefur hagsmuni almennings að leiðarljósi. 

Telur þú Ólína að Jón Gnarr yrði verri borgarstjóri en styrkja drottningin og samflokksmaður þinn hún Steinunn Valdís ?

Þú talar um dýrt spaug, var ekki dýrt spaug að ráða þig sem skólastjóra yfir litlum skóla út á landi  ?  Mitt svar: Jú vegna þess að það kom heldur betur á daginn að þú varst ekki starfinu vaxin. Dýrt jú var ekki gerður starfslokasamningur sem hljóðaði upp á um 20 millur ?

Ólína ætti að tala varlega um hver sé fær til að sinna hinum og þessum störfum.

Annars finnst mér framboð Sóleyjar Tómasdóttur algjört grín.Wink


Ótrúlegir fávitar.

John_Locke
 Miðstýring hjá litlu frjálshyggjustrákunum.
 
Frjálshyggjufélagið hélt aðalfund sinn í lok febrúar. Þessi félagsskapur stendur saman af nokkrum strákabjánum sem hafa aldrei dýft hendinni í kalt vatn.
Þennan fund sátu hátt í fjórða tug manna. Líkt og venja er á aðalfundum er kosið í stjórn, en hana skipa 19 menn. (allt karlmenn) Líkurnar að komast í stjórn eru nokkuð góða, vel ríflega helmingur fundarmanna var kosinn í stjórn. Óvíst er hvort John Locke hefði skrifað upp á miðstýringu af þessu tagi. Komist þessir legátar til valda má líklegast búast við mikilli útþenslu ríkisbáknsins, ef koma á rúmlega helmingi þjóðarinnar í stjórn.
 

Á aðalfundi Frjálshyggjufélagsins var ný stjórn félagsins kjörin. Björn Jón Bragason sagnfræðingur og laganemi var endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórninni eru:

Geir Ágústsson verkfræðingur
Gísli Jón Hjartarson útgerðastjóri
Gísli Freyr Valdórsson blaðamaður
Gunnar Dofri Ólafsson laganemi
Haraldur Pálsson hagfræðinemi
Hjalti Sigurðarson hagfræðingur
Hlynur Jónsson laganemi
Ingimar Tómas Ragnarsson menntaskólanemi
Leifur Þorbergsson hagfræðinemi
Máni Atlason laganemi
Páll Aðalsteinsson, nemi í rekstrarverkfræði
Páll Arnar Guðmundsson laganemi
Skúli Hansen laganemi
Sigurður Þór Gunnlaugsson vínfræðingur
Sævar Guðmundsson laganemi
Valþór Druzin Halldórsson forritari
Vignir Már Lýðsson hagfræðinemi
Vilhjálmur Andri Kjartansson laganemi.

 

Eftir að hafa lesið þennan lista yfir, finnst mér að það þurfi að stór efla kennslu í siðfræði við laga og hagfræðideildir háskólanna.

 

Rökþrot eða vanþroski ?

 

Litlu vitringarnir í Frjálshyggjufélaginu bera hag hinna ríku mjög fyrir brjósti og í samþykkt aðalfundarins segir að orðið auðmaður sé komið á stall og orðið gyðingur "í munni áróðursmeistara þýska nasistaflokksins". Vonandi er hægt að skrifa jafn ósmekklega samlíkingu á vanþroska strákanna í frjálshyggjufélaginu. Það hefur löngum verið mælikvarði á rökþrot að seilast í líkindum til Þýskalands Hitlers.

En þessir vitringar hljóta að vita að auðmenn Íslands sem settu landið sitt í þrot lifa góðu lífi já og betra lífi en Þorri Íslendinga.

En Gyðingarnir voru niðurlægðir pyntaðir og sendir í útrýmingarbúðir og drepnir þar.

 

 

 

 

 

1. maí.

 

 marxist_motherland__1

 

Út á hvað gengur 1. mai ?

 

  Á vefsetri ASÍ (Alþýðusambands Íslands) er sagt frá því að á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í París árið 1889 var samþykkt tillaga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóðlegur frídagur verkafólks. Frakkar lögðu til að verkafólk notaði daginn til fjöldafunda til að fylgja eftir kröfum um 8 stunda vinnudag og aðrar umbætur á kjörum sínum. Rússar lögðust gegn tillögunni. Þeir töldu að undir þeim kringumstæðum sem ríktu í Rússlandi væri ómögulegt að framfylgja henni.

Valið á þessum degi styðst við rótgróna hefð í sunnanverðri Evrópu þar sem menn tóku sér oft frí þennan dag. Í heiðnum sið var hann táknrænn fyrir endalok vetrarins og upphaf sumarsins. Í Skandinavíu var 1. maí fyrsti dagur sumars. Kirkjan helgaði 1. maí dýrlingnum Valborgu sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi. Svíar halda enn þann dag í dag upp á Valborgarmessu kvöldið fyrir 1. maí.

Árið 1923 var fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi. Dagurinn varð lögskipaður frídagur á Íslandi árið 1972 en til samanburðar má geta þess að ríkisstjórn jafnaðarmanna í Svíþjóð gerði daginn að frídegi árið 1938.

Á 1. maí gengur launafólk undir rauðum fána og leikinn er alþjóðasöngur verkalýðsins, Internasjónalinn sem einnig kallast Nallinn. Sumir hugsa aðallega um Sovétríkin sálugu og alræðisvald kommúnistastjórna þegar þeir sjá fánann og heyra sönginn. En upprunalega merking þessara tákna er fyrst og fremst krafa um breytingar og réttlátara þjóðfélag. Rauði liturinn á fána verkalýðshreyfingarinnar táknar uppreisn gegn ranglæti. Hann þýðir að nú sé nóg komið, auk þess sem hann táknar dagrenninguna.

Alþjóðasöngur Verkalýðsins var fyrst fluttur opinberlega í júlí 1888. Höfundur er Eugén Pottier en Sveinbjörn Sigurjónsson þýddi sönginn yfir á íslensku. Lagið er eftir Frakkann Pierre Degeyter og er frá 1888.

Nallinn.

 

Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök !
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag !
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag


Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd !
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd


Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð;
nei, sameinaðir sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð.
Alls hins stolna aftur vér krefjumst,
ánauð þolir hugur vor trautt,
og sjálfir brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt


Vér erum lagabrögðum beittir
og byrðar vorar þyngdar meir,
en auðmenn ganga gulli skreyttir
og góssi saman raka þeir.
Nú er tími til dirfsku og dáða.
Vér dugum, - þiggjum ekki af náð,
Látum bræður því réttlætið ráða,
svo ríkislög vor verði skráð


Till sigurs, eining öreiganna
með alþýðunnar stolta nafn
Þín jörð er óðal allra manna,
en ekki fyrir gamm né hrafn !
Þeirra kyn skóp þér örbirgð og ótta
en er þeir skuggar hverfa úr sýn
einn vordag snemma á feigðarflötta
mun fegurð lífsins verða þín


Sókn til frelsis er falin
vorri fylkingu í dag
unz Internationalinn
er allra bræðrarlag

Hvers vegna var 1. maí fyrir valinu sem baráttudagur verkaklíðsins ?

 

Líklegt er talið að fyrsti maí hafi orðið fyrir valinu sem alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins vegna þess að til forna voru haldnar almenningshátíðir á þessum degi. Af þeim sökum hafði dagurinn á sér alþýðlegan blæ og meðal annars má nefna að kirkjum og konungum gekk illa að gera hann að kristnum hátíðisdegi. Á síðari öldum var maí álitinn fyrsti mánuður sumars. Rómverska gyðjan Maja var tákn æsku og vors.

Það var bandaríska verkalýðssambandið (A.F.L.) sem lagði fram þá tillögu að gera 1. maí að baráttudegi verkalýðsins á þingi Alþjóðasambands sósíalista sem hófst í París á 100 ára afmæli frönsku byltingarinnar 14. júlí 1889.
 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband